Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
Sunnudagur, 27. maí 2007
Afmæli!!
Í dag á hún María Lovísa mín afmæli og er hún 2 ára í dag og svo á hún Louisa Ósk líka afmæli í dag en hún 14 ára í dag. Innilega til hamingju með daginn elskurnar mínar!!
Louisa Ósk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. maí 2007
Nýjar myndir
Myndirnar af Árshátíð Landsbjargar eru komnar inn á síðunna.
KV.Aníta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. maí 2007
Það sem ekkert barn getur fært í orð.
A) Ég bað ekki um að verða til og það er ekki víst, að ég geti orðið það barn, sem ykkur dreymdi um að eignast.Það er ekki einu sinni víst, að ég geti orðið það barn, sem vísindin kalla heilbrigt og eðlilegt. Engu að síður vonast ég til, að ykkur geti þótt vænt um mig, því að án þess get ég ekki náð fótfest í tilverunniEf ykkur þykir ekki vænt um mig, sé ég engan tilgang í því að vera til, því ég er hrein og ómenguð tilfinningavera og kann ekki annað mál en mál tilfinninganna.
B) En hvernig sem ég er, þá er ég Sérstætt Undur Náttúrunnar.Það hefur aldrei verið til annað barn, sem er nákvæmlega eins gert og ég og það verður heldur aldrei til.Þess vegna getið þið aldrei lært neitt um séreðli mitt af bókum eða fræðimönnum, heldur bara það, sem ég á sameiginlegt með öðrum börnum svona í stórum dráttum.
C) Þið skuluð reyna að virða séreðli mitt, því það er hvorki á ykkar færi né mínu að breyta því. En gruni mig, að ykkur falli séreðli mitt ekki í geð, get ég reynt að fara að breyta því til að þóknast ykkur. En mér getur ekki liðið vel, ef mér finnst ég þurfa að lifa lífinu í andstöðu við mitt eigið eðli.
D) Því miður get ég ekki skýrt séreðli mitt fyrir ykkur. Þess vegna á ég alla velferð mína undir skarpskyggni ykkar og athygli.Það er svo auðvelt að horfa án þess að sjá og hlusta án þess að heyra og það er enn auðveldara að sjá bara það, sem maður býst við að sjá og heyra bara það, sem maður býst við að heyra.Ef þið festist í þeirri gildru, getur verið, að þið uppgötvið aldrei hvernig ég er í raun og veru eða hvers vegna ég bregst við eins og ég geri.
E) En þó að mig langi til að fá að vera bara svona eins og ég er, langar mig samt að geta þroskað þá hæfileika, sem ég hef hlotið í vöggugjöf.En til þess þarf ég á handleiðslu ykkar að halda. Og það er ekki vandalaust verk. Það er hægt að ýta svo á eftir mér, að mér verði á fótaskortur á hraðanum og ekki víst, hve vel mér gengur að rísa á fætur. Á hinn bóginn getið þið líka verið svo hrædd um mig, að þið leyfið mér aldrei að spreyta mig nægilega til að ég geti haldið áfram að þroskast.Til þess þarf ég að minnsta kosti öðru hvoru og helst sem oftast, að fá að spreyta mig við efri mörk getu minnar- og það er skaðlaust, svo framalega sem þið hafið augun opin og fylgist með, hvenær ég er að þreytast, eða hvenær verkefnið er að vaxa getu minni yfir höfuð.Ef ég fæ ekki að spreyta mig, öðlast ég aldrei það öryggi, sem reynslan ein getur gefið, en séu verkefnin að staðaldri ofviða getu minni, missi ég kjarkinn og sjálfstraustið.
F) Að sjálfsögðu vil ég gjarnan fá að ráða. Í rauninni langar mig mest til að sveigja allt og alla undir minn vilja.En þetta megið þið ekki leyfa mér, því að það er of hættulegt. Þið verðið að passa mig fyrir hættum, því ég kann ekki að forðast hættu, því að það er mikilvægast.Siðfágunin getur beðið betri tíma.Ef ég finn, að ykkur þykir vænt um mig, vil ég ýmislegt fyrir ykkur gera, því að mér fer að þykja vænt um ykkur á móti. Og ég get vel beygt mig og minn vilja undir ykkar vilja, svo framarlega sem reynslan sýnir mér, að ykkur er ávallt mín velferð efst í huga, þegar þið eruð að banna mér eða að aga mig, en látið ekki stundarduttlungana ykkar eða augnablikshagsmuni ykkar ráða ferðinni.Finni ég glöggt, að þið berið ávallt mína verferð fyrir brjósti, kemur fyrr eða síðar að því, að mér verður ljóst, að handleiðsla ykkar forðar mér frá glappaskotum, sem ég mundi gera, ef minn vilji réði einn.En ef þið viljið, að ég hlýði til þess eins, að þið getið sýnt vald ykkar yfir mér, er ekki víst, að ég verði svo mjög fús til samvinnu.Ég hlýði ykkur ef til vill að hræðslu, meðan þið sjáið til, en þið skuluð ekki búast við, að ég haldi því áfram, þegar, þegar þið eruð búin að snúa við mér bakinu. Og þaðan af síður skuluð þið halda, að ég hlýði til þess eins að þið getið státað ykkur af því, hvað þið eruð góðir uppalendur. Þá bíð ég bara eftir tækifæri til að verða ykkur til skammar, þegar næsti gestur kemur í heimsókn.
G) Og síðast en ekki síst, vil ég biðja ykkur að muna, að þið eruð fyrirmynd mín í tilverunni.Ég hermi eftir öllu, sem þið gerið, hvort sem það er gott eða vont.Það þýðir ekki fyrir ykkur að segja mér að gera eitt, ef þið gerið sjálf eitthvað allt annað.Ég tek ekki mikið mark á orðum og sérlega ekki, ef ég finn, að þau stangast á allt það, sem ég sé fyrir mér.Ég skil ekki einu sinni alltaf það, sem þið eruð að segja en ég get alltaf hermt eftir því sem ég sé fyrir mér, hvort sem ég vil það eða ekki.Þess vegna skuluð þið aldrei gleyma þeirri einföldu staðreynd, en erfiðu, að það er ykkar eigin hegðun, sem mótar mig ÖLLU ÖÐRU FRAMAR.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. maí 2007
kreisí helgi búinn..
Þessi helgi er búin að vera eitt stórt brjálæði í vinnunni hjá mér en ég byrjaði að vinna á föstudaginn og er búin að vera að vinna alla helgina og er ég nú kominn í 2 daga frí...Jibbbí..
Annars hótelið var full bókað alla helgina og þurftum við að þrífa öll herbergin en sem betur frer fóru sumir snemma svo álagið dreifðist svona nokkurnvegin nema í dag en þá fóru nánast allir um tólf og við þuerftum að vera búin að þrífa öll herbergin fyrir kl.2 í dag. En þetta reddaðist allt og vorum við búin rétt fyrir 2.
Annars var árshátíð Landsbjargar í gær og var hún mjög skemmtileg. Reyndar var ég bara í matnum og þegar skemmtiatriðin og fleira voru en ég fór þegar ballið byrjaði því ég þurfti að fara að vinna í morgun. Myndirnar koma inn á næstu dögum eða reyndar að segja um leið og ég nenni að setja þær inn.
Læt þetta duga í bili.
Bæjó...
Aníta Ósk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 18. maí 2007
Vinna vinna vinna
Er á fullu að vinna í bjleikum, og árshátíð.
Vinna frammá nótt.
er farin yfirumm í vinnu.
Árni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
Jæja jæja
Svaf aðeins of lengi í morgun. En hvað með það Til hamingju með vinnuna Aníta mín.
Árni Svefngengill
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
Kominn með vinnu!!!
Það fylgja nú ýmis fríðindi við það að vinna þarna og er það barasta fínt!!;) Ég verð að vinna á 2-2-3 vöktum sem þýðir að ég verð að vinna aðra hverja helgi sem er frábært því þá get ég notað hinar til að ferðast og fl.
Ekkert er annars að fréta nema að ég fór að skoða hótelið í dag og er það alveg hæfilega stórt en það eru 15 herbergi og allt á eini hæð sem er bara þægilegt. Svo er líkamsræktasalur og ýmislegt fleira þarna á hótelinu sem ég hef aðgang að er það bara næs....
Jæja læt þetta duga í dag..
Bæjó...
Aníta Ósk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 15. maí 2007
Hundur
Hundar eru borðaðir sumstaðar og þar eru hundar eins og hross, bannað að leika sér að matnum, það á að salta þá í tunnu.
Hrossakjöt er allavegana gott, en ég get ímyndað mér að hundur bragðist kanski eins og kjúklingur, kanína, áll, sem bragðast eins og kjúklingur, það ætti kanski að bjóða uppá hunda tvister á kfc.
Þetta er bara vangavelta og svar til þín ástin.
Kveðja Árni Hundur(eða kjúklingur með 4 fætur??)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 15. maí 2007
Hundur???
Hvernig ætli hundur sé á bragðið???
Allavegana langar mig ekki til að komast að því, því ég borða sem betur fer ekki gæludýr en hundar eru gæludýr....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Tenglar
Ýmsar síður
Ýmsar síður...
- Jamboree sveitin Eldey Jamboree sveitin Eldey
- BÍS Bandalag Íslenskra Skáta
- Heiðabúar Skátafélagið Heiðabúar
- Bj.Suð. Björgunarsveitin Suðurnes
- NFS Nemendafélag fjölbrautaskóla suðunesja
- FS Fjölbrautaskóli Suðunesja
(;!!Litlu börnin!!;)
Síður hjá litlum vinum og ættingjum
- Suðunesjabörn Síður hjá börnum sem búa á suðunesjum
- Bryndís Eva Stór hetja - minning
- María Mist
- Natalía Sól
- Emilía Rakel Hetja
- Aron Birgir
- Barði Freyr
- Birgir Hetja
- Huginn Heiðar Hetja
- Stella Bergrán
- María Lovísa
Bloggarar
Blogg síður vina og ættingja
- Árný Hildur Síðan hennar Árnýjar (minning)
- Elísabet Síðan hennar Elísubetar
- Matthildur
- Kolla og Bjarki
- Guðný R.
- Bebba og Hjölli Foreldrar Bryndísar Evu
- Andrea Björg
- Björg Ásta
- Hildur Emma
- Magga Jóna
- Helga María
- Beta, Birna og Helga
- Sveinbjörg Anna
- Árni Freyr Síðan hans Árna
- Aníta Ósk Síðan hennar Anítu Ósk